Meðlimir strákahljómsveitarinnar NSYNC virðast halda tryggð hver við annan þrátt fyrir að hljómsveitin hafi ekki komið fram í tæpa tvo áratugi. Fyrr í vikunni deildi Lance Bass, einn af söngvurum bandsins, myndum af fyrrverandi félögum sínum úr NSYNC þegar þeir heimsóttu hann og nýfædda tvíbura hans.
„Tveir bestu pabbar sem ég veit um,“ skrifaði hann við mynd af þeim Joey Fatone og Chris Kirkpatrick þar sem þeir héldu hvor á sínu barninu og brostu breitt.
Um miðjan október tilkynntu þeir Lance Bass og eiginmaður hans til fjölda ára, Michael Turchin, fæðingu tvíburanna. En tvíburarnir, þau Violet Betty og Alexander James, komu í heiminn með aðstoð staðgöngumóður, samkvæmt fréttamiðlinum People. Þeir Bass og Turchin gætu ekki verið lukkulegri með þessa tvöföldu viðbót.