Hvar er barnið úr The Holiday í dag?

Litla stúlkan í The Holiday er nú 22 ára.
Litla stúlkan í The Holiday er nú 22 ára. Skjáskot

Miffy Englefield var aðeins sex ára þegar hún vann hug og hjörtu áhorfenda fyrir leik sinn í jólamyndinni The Holiday sem skartaði þeim Jude Law, Kate Winslet, Jack Black og Cameron Diaz.

Í dag er hún 22 ára og býr ásamt kærasta og barni í West Sussex. Hún er virk á TikTok og setti inn færslu á dögunum þar sem kom fram að stundum segðu gamlir karlar að þeir væru ánægðir með að hún væri enn jafnsæt og þegar hún lék í The Holiday. Henni þætti það óhugnanlegt að þeir tengdu saman það hvernig hún liti út sex ára og það hvernig hún liti út sem fullorðin kona.

Gömlum körlum finnst hún enn jafnsæt og þegar hún lék …
Gömlum körlum finnst hún enn jafnsæt og þegar hún lék í myndinni The Holiday. En þá var hún sex ára. Skjáskot

Finnst þetta stundum neyðarlegt

„Það var ótrúlegt að vera í myndinni,“ segir Englefield í viðtali við The Sun. „Ég fer alltaf að hlæja þegar ég sé myndina í sjónvarpinu - og það gerist oft! Kærastanum mínum finnst þetta fyndið. Hann segir öllum frá þessu. Við höfum horft á myndina saman en í hreinskilni sagt þá fer ég mjög hjá mér. Þetta er svo neyðarlegt.“

Miffy Englefield er lengst til vinstri.
Miffy Englefield er lengst til vinstri. Skjáskot

Stjörnurnar mjög indælar

„Jude varði miklum tíma með okkur. Hann var alltaf að gefa mér ráð um leiklist. Við sátum saman og gerðum æfingar á milli atriða. Allar stjörnurnar voru mjög vinsamlegar. Myndin var tekin upp aftur á bak. Við byrjuðum á lokasenunni þar sem við dönsuðum öll saman í stofunni. Það var gott því það braut ísinn og við kynntumst betur.“

„Ég vissi ekkert hver Cameron eða Jude voru því ég var aðeins sex ára. En ég þekkti Jack Black því pabbi minn var alltaf að hlusta á hann og hljómsveit hans Tenacious D. Fyrst þegar ég hitti hann sagði ég honum að ég elskaði tónlistina hans. Honum fannst það fráleitt því ég væri bara sex ára.“

„Það var ótrúleg upplifun að fara úr félagsþjónustuíbúð í svona umhverfi. En ég elskaði hverja mínútu.“

Hætti í leiklistinni

Englefield ákvað að hætta í leiklistinni þegar hún komst á unglingsaldur.

„Þetta tók mikinn tíma frá fjölskyldu minni, pabbi minn átti líka önnur börn sem þurftu athygli hans. Ég sé ekki eftir neinu, þó að þetta hafi verið gaman,“ segir Englefield sem kveðst ekki vita hvað hún þénaði af myndinni.

Miffy Englefield er virk á TikTok og sýnir hvernig á …
Miffy Englefield er virk á TikTok og sýnir hvernig á að farða sig. Skjáskot
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert