Erfitt að deila forræði með fyrrverandi

Ronan Keating segir það flókið að deila foreldraskyldum með fyrrverandi.
Ronan Keating segir það flókið að deila foreldraskyldum með fyrrverandi. Skjáskot/Instagram

Írska poppstjarnan Ronan Keating segir það geti verið vandasamt verkefni að deila foreldraskyldum með sinni fyrrverandi. 

Boyzone stjarnan var giftur fyrirsætunni Yvonne í fjölmörg ár eða til ársins 2011 og eiga þau saman þrjú börn á aldrinum 12, 17 og 19 ára.

Nú er Keating giftur Storm Uechtritz og saman eiga þau soninn Cooper sem er eins árs.

Í viðtali við The Irish Sun sagði söngvarinn að það geti verið erfitt að deila forræði með fyrrverandi. „Það er ekki alltaf auðvelt, en maður reynir að vera rólegur og komast í gegnum þetta fyrir börnin.“

„Maður verður alltaf að haga sér eins og fullorðinn einstaklingur til þess að geta tekist á við þetta verkefni. Það koma tímar sem ég verð svo reiður og pirraður en maður verður bara að bæla þær tilfinngar. Maður verður að vernda börnin, alltaf.“

„Að ala börn upp á sitt hvorum stað, frá tveimur ólíkum sjónarmiðum. Þín útgáfa af atburðum getur tekið breytingum. Maður verður að setja börnin í fyrsta sæti.“ 

Keating giftist Yvonne þegar hann var aðeins 21 árs og móðir hans var nýlátin úr krabbameini. Hann segir það ekki endilega hafa verið skynsamlegt og hvetur börn sín til þess að bíða lengur með að gifta sig og njóta frekar lífsins.

Yvonne Connolly og Ronan Keating á meðan allt lék í …
Yvonne Connolly og Ronan Keating á meðan allt lék í lyndi. Skjáskot Independent
Ronan og Storm Keating eru gift og eiga saman einn …
Ronan og Storm Keating eru gift og eiga saman einn son. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert