Albert prins með börnin í jólaþorpi

Börnin eru mikið búin að vera á stjá með pabba …
Börnin eru mikið búin að vera á stjá með pabba sínum á meðan móðirin jafnar sig eftir erfið veikindi. AFP

Albert prins af Mónakó og börnin hans tvö voru viðstödd opnun jólaþorps í Mónakó. Mikið var um dýrðir og ljóst að Albert vildi að börnin upplifðu sannkallaða jólastemningu.

Mikið hefur mætt á fjölskyldunni að undanförnu en Charlene prinsessa hefur glímt við mikil og erfið veikindi sem hafa gert það að verkum að hún hefur lítið sem ekkert getað varið tíma með fjölskyldunni. Nú er hún í hvíldarinnlögn á ónefndum stað utan Mónakó og ekki er vitað hvenær hún snýr aftur heim til sín. Börnin urðu sjö ára 10. desember og líklegt þykir að Charlene hafi misst af þeim áfanga í lífi þeirra.

Gabríella prinsessa og Jaques prins eru sjö ára gömul.
Gabríella prinsessa og Jaques prins eru sjö ára gömul. AFP
Albert prins ásamt börnunum sínum og Karólínu prinsessu systur hans.
Albert prins ásamt börnunum sínum og Karólínu prinsessu systur hans. AFP
Albert prins hefur sýnt af sér föðurlegri ímynd að undanförnu …
Albert prins hefur sýnt af sér föðurlegri ímynd að undanförnu og virðist virkari í föðurhlutverkinu. Hér lyftir hann dóttur sinni til þess að hún geti snert styttuna. AFP
Stórfjölskyldan saman. Það vantar bara Charlene prinsessu sem er að …
Stórfjölskyldan saman. Það vantar bara Charlene prinsessu sem er að jafna sig eftir erfið veikindi. AFP
Börnin virðast njóta samverustundanna með pabba sínum.
Börnin virðast njóta samverustundanna með pabba sínum. AFP
Börnin fóru í ýmis leiktæki.
Börnin fóru í ýmis leiktæki. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert