Vill ekki missa af æskuárum dætra sinna

Ryan Reynolds.
Ryan Reynolds. AFP

Leikarinn Ryan Reynolds hefur ákveðið að taka sér tímabundið leyfi frá störfum. Ástæðan er sú að hann vill ekki missa af dýrmætum tíma með dætrum sínum og eiginkonu sinnar Blake Lively. 

Reynolds greindi frá ákvörðun sinni fyrir nokkrum mánuðum en ræddi hana í viðtali nýverið. Leikarinn sagðist hafa leikið mjög mikið undanfarin ár og leiklistin væri án efa ástríða hans. 

„En aðalatriðið í lífi mínu, og þú veist ég á börn líka, er að ég vil ekki missa af þessum tíma með börnunum mínum,“ sagði Reynolds. 

Reynolds og Lively eiga þrjár dætur, James sex ára, Inez fimm ára og Betty sem er tveggja ára.

„Ég er mjög oft í Evrópu þegar ég er í tökum, ég er í burtu, og þetta er langur tími, og það er rík krafa gerð á að ég sé á staðnum allan tímann, ekki bara af því að ég er að leika, því ég kem að framleiðslu og handritinu í kvikmyndunum mínum líka,“ sagði Reynolds. 

Hann segir mikið gert úr honum og lífi hans þegar hann er áberandi í kvikmyndum. Því telur hann þetta vera hinn fullkomna tíma til að stíga aðeins til hliðar, bæði fyrir fjölskylduna hans og fyrirtækin sem hann rekur. 

Bæði Reynolds og Lively hafa talað um það í viðtölum að þau vilji að dæturnar eigi eðlilega æsku. Þau hafa því skipst á um að taka að sér stór kvikmyndaverkefni svo annað þeirra geti verið hjá börnunum á meðan. 

Hann segir það vera töluvert meiri áskorun eftir því sem börnin eldast. „Núna þegar þær eru komnar í skóla og eru með nokkuð eðlilega rútínu held ég að það sé mjög mikilvægt fyrir þroska þeirra og ég nýt þess að vera til staðar. Ég elska að fara með þær í skólann á morgnana og ég elska að sækja þær,“ sagði leikarinn.

Blake Lively og Ryan Reynolds eiga þrjár dætur.
Blake Lively og Ryan Reynolds eiga þrjár dætur. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert