Móeiður og Hörður Björgvin eiga von á barni

Móeiður Lárusdóttir og Hörður Björgvin eiga von á öðru barni.
Móeiður Lárusdóttir og Hörður Björgvin eiga von á öðru barni. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Knattspyrnustjarnan Hörður Björg­vin Magnús­son og kær­asta hans Móeiður Lár­us­dótt­ir eiga von á sínu öðru barni á næsta ári. Parið greindi frá gleðitíðindunum á samfélagsmiðlum sínum í gær en þau eru nú stödd í fríi í Dúbaí.

Dóttir þeirra, Mattea Móa Harðardótt­ir, kom í heiminn í apríl í fyrra. „Bráðum verðum við fjögur,“ skrifaði Móeiður á Instagram.

Móeiður og Hörður búa nú í Moskvu í Rússlandi þar sem Hörður leik­ur með liðinu CSKA Moskva. Í framtíðinni sjá þau fyrir sér að búa í Fossvoginum í Reykjavík en fyrr á þessu ári keyptu þau einbýlishús af fyrr­ver­andi landsliðsmann­in­um Eiði Smára Guðjohnsen og fyrr­ver­andi eig­in­konu hans Ragn­hildi Sveins­dótt­ur.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert