Sigurborg Ósk og Björn Hákon eignuðust son

Sigurborg Ósk Haraldsdóttir og eiginmaður hennar Björn Hákon Sveinsson eignuðust …
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir og eiginmaður hennar Björn Hákon Sveinsson eignuðust son.

Landslagsarkitektinn Sigurborg Ósk Haraldsdóttir og sjúkraþjálfarinn Björn Hákon Sveinsson eignuðust son hinn 14. desember síðastliðinn. Er þetta þeirra þriðja barn og þriðji drengurinn sem fæðist á heimilinu. 

Sigurborg Ósk var áður formaður skipulags- og samgönguráðs í Reykjavík en lét af störfum fyrr á þessu ári. Fluttust þau fjölskyldan til Húsavíkur þar sem Björn Hákon er fæddur og uppalinn. 

Sigurborg Ósk greindi frá fæðingu sonar síns á Twitter í dag. „Hríðir með sársauka sem ræna þig vitinu blikna í samanburði við að hitta þetta barn. Hann kom í heiminn 14. des. og eftir aðeins nokkurra daga kynni tilnefni ég hann sem mann ársins 2021,“ skrifar Sigurborg. 

Barnavefurinn óskar þeim til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert