Barnalán íslensku stjarnanna 2021

Frosti Logason og Helga Gabríela, Skúli og Gríma og Sigríður …
Frosti Logason og Helga Gabríela, Skúli og Gríma og Sigríður Thorlacius eru á meðal þeirra stjarna sem fjölguðu sér á árinu. Samsett mynd

Íslenskar stjörnur hafa heldur betur verið uppteknar við að fjölga sér á þessu ári. Þessar íslensku stjörnur eignuðust barn á árinu. 

Gríma Björg Thorarensen og Skúli Mogensen

Innanhússhönnuðurinn Gríma og athafnamaðurinn Skúli eignuðust sinn annan son saman í september á þessu ári. Litli drengurinn fékk nafnið Stormur.

Skúli Mogensen og Gríma Björg Thorarensen.
Skúli Mogensen og Gríma Björg Thorarensen. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Viktoría Hermannsdóttir og Sólmundur Hólm

Fjölmiðlaparið Viktoría og Sóli Hólm eignaðist sitt fimmta barn á árinu. Litli drengurinn fékk nafnið Hermann Flóki.

Viktoría Hermannsdóttir og Sóli Hólm.
Viktoría Hermannsdóttir og Sóli Hólm.

Daði Freyr Pétursson og Árný Fjóla Ásmundsdóttir

Eurovisionhjónin Daði Freyr og Árný Fjóla eignuðust sína aðra dóttur á árinu. Litla stúlkan fékk nafnið Kría Sif.

Daði Freyr og Árný Fjóla.
Daði Freyr og Árný Fjóla.

Sara Björk Gunnarsdóttir og Árni Vilhjálmsson

Fótboltaparið Sara Björk og Árni eignaðist sitt fyrsta barn á þessu ári. Litli drengurinn fékk nafnið Ragnar Frank. 

Sara Björk Gunnarsdóttir.
Sara Björk Gunnarsdóttir. mbl.is/Hari

Auðunn Blöndal og Rakel Þormarsdóttir

Fjölmiðlamaðurinn Auðunn Blöndal og fyrirsætan Rakel eignuðust sitt annað barn á þessu ári. Litli drengurinn fékk nafnið Matteó Orri.

Auðunn Blöndal og Rakel eignuðust son.
Auðunn Blöndal og Rakel eignuðust son.

Logi Pedro og Hallveig Hafstað Haraldsdóttir

Tónlistarmaðurinn Logi Pedro og Hallveig eignuðust soninn Tómas Pedro á þessu ári. Hann er fyrsta barn þeirra saman en fyrir á Logi einn son.

Logi Pedro Stefánsonn og Hallveig Hafstað Haraldsdóttir.
Logi Pedro Stefánsonn og Hallveig Hafstað Haraldsdóttir. skjáskot/Instagram

Guðríður Jónsdóttir og Egill Einarsson

Snyrtifræðingurinn Gurrý og kærasti hennar, einkaþjálfarinn Egill Einarsson, eignuðust annað barn sitt, soninn Aron Leó.

Guðríður Jónsdóttir og Egill Einarsson.
Guðríður Jónsdóttir og Egill Einarsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Helga Gabríela Sigurðardóttir og Frosti Logason

Kokkurinn Helga Gabríela og fjölmiðlamaðurinn Frosti eignuðust sinn annan son á þessu ári. Litli drengurinn fékk nafnið Máni.

Frosti Logason og Helga Gabríela.
Frosti Logason og Helga Gabríela. mbl.is/Stella Andrea

Sverrir Bergmann og Kristín Eva Geirsdóttir

Tónlistarmaðurinn Sverrir Bergmann og lögfræðingurinn Kristín Eva eignuðust aðra dóttur í byrjun maí á þessu ári. Litla stúlkan fékk nanfið Sunna Stella.

Sverrir Bergmann og Kristín Eva.
Sverrir Bergmann og Kristín Eva.

Elísabet Margeirsdóttir og Páll Ólafsson

Hlaupadrottningin Elísabet og kærasti hennar Páll eignuðust sitt fyrsta barn, soninn Margeir Inga.

Elísabet Margeirsdóttir.
Elísabet Margeirsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir

Leikkonan og fjölmiðlakonan Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir eignaðist sitt fyrsta barn. Hún fæddi lítinn son sem hefur fengið nafnið Birgir Galdur.

Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir.
Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir. Skjáskot/Instagram

Hildur Vala Einarsdóttir og Jón Ólafsson

Tónlistarhjónin Hildur Vala og Jón eignuðust son 1. júlí síðastliðinn og er hann fjórða barn foreldra sinna saman. Litli drengurinn fékk nafnið Arnaldur Jón.

Hildur Vala Einarsdóttir og Jón Ólafsson.
Hildur Vala Einarsdóttir og Jón Ólafsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sigríður Thorlacius 

Tónlistarkonan Sigríður Thorlacius eignaðist son á þessu ári. Litli drengurinn hefur fengið nafnið Markús. 

Sigríður Thorlasíus.
Sigríður Thorlasíus. mbl.is/Árni Sæberg

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir og Rafal Orpel

Píratinn Þórhildur Sunna og eiginmaður hennar Rafal eignuðust sitt fyrsta barn í febrúar á þessu ári. Í heiminn kom drengur sem hefur fengið nafnið Anton Örn.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir. mbl.is/Hari

Valdimar Guðmundsson og Anna Björk Sigurjónsdóttir

Tónlistarmaðurinn Valdimar og sambýliskona hans Anna Björk eignuðust sitt fyrsta barn á þessu ári. Litli drengurinn fékk nafnið Sigurjón Tumi.

Anna Björk Sigurjónsdóttir og Valdirmar Guðmundsson.
Anna Björk Sigurjónsdóttir og Valdirmar Guðmundsson. mbl.is/Stella Andrea

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Thomas Bojanowski

Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn og eiginmaður hennar Thomas eignuðust son á þessu ári. Litli drengurinn er fyrsta barn foreldra sinna og hefur fengið nafnið Maron Atlas.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. mbl.is/Árni Sæberg

Hildur Skúladóttir og Aron Már Ólafsson

Sálfræðingurinn Hildur og leikarinn Aron Már eignuðust annað barn sitt á árinu. Lítill drengur kom í heiminn. 

Hildur Skúladóttir og Aron Már Ólafsson.
Hildur Skúladóttir og Aron Már Ólafsson. Ljósmynd/Instagram

Berglind Icey og Örn Valdimar Kjartansson

Fyrirsætan Berglind og fjárfestirinn Örn Valdimar eignuðust dóttur á árinu. Litla stúlkan fékk nafnið Ísey Von.

Örn Valdimar Kjartansson og Berglind Icey.
Örn Valdimar Kjartansson og Berglind Icey.

Hjörtur Hermannsson og Bera Tryggvadóttir

Landsliðsmaðurinn Hjörtur Hermannsson og kærasta hans Bera Tryggvadóttir eignuðust sitt fyrsta barn á árinu. Þeim fæddist lítill drengur sem fengið hefur nafnið Högni.

Bera og Hjörtur.
Bera og Hjörtur. Skjáskot/Instagram

Elísabet Ormslev og Sindri Þór Kárason

Tónlistarkonan Elísabet Ormslev og Sindri eignuðust sitt fyrsta barn saman nú í desember. Í heiminn kom fallegur og heilbrigður drengur.

Elísabet og Sindri Þór.
Elísabet og Sindri Þór. Skjáskot/instagram

Sigurborg Ósk Haraldsdóttir og Björn Hákon Sveinsson

Píratinn Sigurborg Ósk og eiginmaður hennar Björn Hákon eignuðust sinn þriðja son 14. desember síðastliðinn.

Sigurborg Ósk Haraldsdóttir.
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert