Þessar íslensku stjörnur eiga von á barni 2022

Jóhanna Guðrún, Milla Ósk og Einar og Bergþór ætla öll …
Jóhanna Guðrún, Milla Ósk og Einar og Bergþór ætla öll að fjölga mannkyninu á næsta ári. Samsett mynd

Það er útlit fyrir að fjöldi stjörnubarna fæðist á næsta ári. Þessar íslensku stjörnur ætla að fæða nýtt líf inn í þennan heim árið 2022. 

Friðrik Dór Jónsson og Lísa Hafliðadóttir

Tónlistarmaðurinn Friðrik Dór og eiginkona hans Lísa eiga von á sínu þriðja barni.

Lísa Hafliðadóttir og Friðrik Dór Jónsson
Lísa Hafliðadóttir og Friðrik Dór Jónsson mbl.is/Golli

Jóhanna Guðrún og Ólafur Friðrik Ólafsson

Tónlistarkonan Jóhanna Guðrún og Ólafur Friðrik eiga von á sínu fyrsta barni saman en fyrir á hún tvö börn.

Jóhanna Guðrún Jónsdóttir og Ólafur Friðrik.
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir og Ólafur Friðrik. Samsett mynd

Milla Ósk Magnúsdóttir og Einar Þorsteinsson 

Milla Ósk, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, og fréttamaðurinn Einar eiga von á sínu fyrsta barni saman. Fyrir á Einar tvær dætur úr fyrra hjónabandi.

Milla Ósk Magnúsdóttir og Einar Þorsteinsson.
Milla Ósk Magnúsdóttir og Einar Þorsteinsson. mbl.is/Elsa Katrín Ólafsdóttir

Laufey Rún Ketilsdóttir og Bergþór Ólason

Lögmaðurinn Laufey Rún og þingmaður Miðflokksins Bergþór Ólason eiga von á sínu fyrsta barni saman. Fyrir á Bergþór dóttur úr fyrra hjónabandi.

Bergþór Ólason og Laufey Rún Ketilsdóttir.
Bergþór Ólason og Laufey Rún Ketilsdóttir.

Ragnar Sigurðsson og Elena Bach

Fótboltamaðurinn Ragnar og eiginkona hans Elena eiga von á öðru barni sínu saman, en fyrir eiga þau dótturina Míu.

Ragnar Sigurðsson.
Ragnar Sigurðsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Pattra Sriyanonge og Theódór Elmar Bjarnason

Tískubloggarinn Pattra og fótboltamaðurinn Theódór eiga von á lítilli stúlku á næsta ári. Fyrir eiga þau son. 

Pattra og Theódór Elmar.
Pattra og Theódór Elmar.

Katla Hreiðarsdóttir og Haukur Unnar Þorkelsson

Fatahönnuðurinn og eigandi verslunarinnar Systra og maka, Katla, og eiginmaður hennar Haukur eiga von á sínu öðru barni saman.

Katla Hreiðarsdóttir.
Katla Hreiðarsdóttir. mbl.is/Kristinn Magnússon

Eva Dögg Rúnarsdóttir og Stefán Darri Þórsson

Jógakennarinn Eva Dögg og handboltamaðurinn Stefán Darri eiga von á sínu fyrsta barni saman á næsta ári. Eva á tvö börn fyrir.

Eva Dögg og Stefán Darri.
Eva Dögg og Stefán Darri.

Anna Marsibil Clausen og Eiríkur Sigurðarson

Fjölmiðlakonan Anna Marsý og hljóðmaðurinn Eiríkur eiga von á sínu fyrsta barni saman en fyrir á hann eina dóttur.

Anna Marsibil Clausen og Eiríkur Sigurðarson.
Anna Marsibil Clausen og Eiríkur Sigurðarson.

Karin Arnhildardóttir og Stefán Hjálmtýr Stefánsson

Tónlistarkonan Karin og graffíski hönnuðurinn Stefán eiga von á barni á næsta ári.

Stefán Hjálmtýr og Karin.
Stefán Hjálmtýr og Karin. Skjáskot/Instagram

Unnur Eggertsdóttir og Travis

Leik- og söngkonan Unnur og unnusti hennar Travis eiga von á barni.

Unnur Eggertsdóttir.
Unnur Eggertsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Egill Ploder Ottósson og Thelma Gunnarsdóttir

Útvarpsmaðurinn Egill Ploder og kærasta hans Thelma eiga von á sínu fyrsta barni saman.

Egill Ploder og Thelma.
Egill Ploder og Thelma. Ljósmynd/Facebook

Hörður Björgvin Magnússon og Móeiður Lárusdóttir

Fótboltamaðurinn Hörður Björgvin og kærasta hans eiga von á öðru barni sínu á næsta ári. Fyrir eiga þau dótturina Matteu Móu.

Móeiður Lárusdóttir og Hörður Björgvin Magnússon.
Móeiður Lárusdóttir og Hörður Björgvin Magnússon. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Jón Jónsson og Hafdís Björk Jónsdóttir

Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson og eiginkona hans Hafdís eiga von á sínu fjórða barni á komandi ári. Frá þessu greindi Jón á aðfangadag og greindi einnig frá því að lítill drengur væri væntanlegur. Fyrir eiga þau tvær dætur og einn son.

Jón Jónsson ogHafdís Björk Jónsdóttir ásamt elstu börnum sínum, Jóni …
Jón Jónsson ogHafdís Björk Jónsdóttir ásamt elstu börnum sínum, Jóni Tryggva og Mjöll. mbl.is/Stella Andrea
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert