María og Gunnar eiga von á sínu fyrsta barni

Gunnar Leó Pálsson og María Ólafsdóttir eiga von á sínu …
Gunnar Leó Pálsson og María Ólafsdóttir eiga von á sínu fyrsta barni saman. Skjáskot/Instagram

Eurovisionfarinn María Ólafsdóttir og kærasti hennar, trommarinn Gunnar Leó Pálsson, eiga von á sínu fyrsta barni saman. Frá því greindu þau í nýárskveðju sinni á samfélagsmiðlum. 

María og Gunnar hafa verið saman frá árinu 2015 en sama ár keppti hún í Eurovision fyrir Íslands hönd. 

„Áramótabomban okkar 2022,“ skrifaði María við myndina af þeim Gunnari saman, með sónarmynd í höndunum.

Barnavefurinn óskar þeim innilega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert