Orðinn tveggja barna faðir

Anderson Cooper er nú orðinn tveggja barna faðir.
Anderson Cooper er nú orðinn tveggja barna faðir. Ljósmynd/Instagram Anderson Cooper

Anderson Cooper fréttamaður eignaðist á dögunum sitt annað barn. Barnið heitir Sebastian Luke Maisani-Cooper.

Cooper sem er 54 ára á fyrir soninn Wyatt sem er að verða tveggja ára.

„Þetta er Sebastian Luke Maisani-Cooper. Hann vó 3 kg og er heilbrigður og hamingjusamur. Hann bara sefur, borðar og kúkar en virðist mjög íhugull og vitur lítill strákur,“ sagði Cooper í þættinum sínum á CNN.

Cooper heldur áfram að ala syni sína upp með fyrrverandi kærastanum sínum Benjamin Maisani. „Wyatt kallar mig „daddy“ en Benjamín „papa“. Við erum fjölskylda. Benjamín ætlar líka að ættleiða Wyatt og fær hann þá líka eftirnafnið Maisani-Cooper.

Cooper þakkar frábæru liði lækna og hjúkrunarfræðinga sem hjálpuðu að koma Sebastian í heiminn. Þá þakkaði hann einnig staðgöngumóðurinni og fjölskyldu hennar fyrir að færa þessar fórnir.

„Ég er vissulega rólegri nú en í fyrsta skiptið. Sebastian líður vel og hann er yndislegur. Hann er miklu hárprúðari en Wyatt og er bara ótrúlegur,“ segir Cooper.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert