Barnið fæddist 12 vikum fyrir tímann

Priyanka Chopra og Nick Jonas eignuðust barn fyrir tímann.
Priyanka Chopra og Nick Jonas eignuðust barn fyrir tímann. AFP

Stjörnu­hjón­in Nick Jon­as og Priyanka Chopra eignuðust barn með hjálp staðgöngumóður í janúar. Barnið fæddist töluvert fyrir tímann og fékk því ekki að fara heim strax. 

Foreldrarnir fóru út að borða í Kaliforníu á sunnudaginn og var barnið hvergi sjáanlegt. Daily Mail greinir frá því að barnið hafi fæðst 12 vikum fyrir tímann. Það þurfti að dvelja á spítala rétt fyrir utan Los Angeles þar til það náði heilsu til að fara heim. 

Hin 39 ára gamla Chopra og hinn 29 ára gamla Nick gengu í hjónaband árið 2018. Þau greindu nokkuð óvænt frá því að þau hefðu eignast barn í janúar með hjálp staðgöngumóður. Fyrir það höfðu þau talað um að þau vonuðust til þess að eignast barn í framtíðinni. 

„Þau eru stór þátt­ur af framtíðar­von­um okk­ar,“ sagði Chopra um börn í viðtali sem kom út aðeins nokkrum dögum áður en barnið kom í heiminn á undan áætlun. „Ef guð lof­ar þá ger­ist það þegar það ger­ist.“

Priyanka Chopra og Nick Jonas eiga eitt barn.
Priyanka Chopra og Nick Jonas eiga eitt barn. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert