Rifjuðu upp gamla tíma

Beckham-hjónin með son sinn Brooklyn Beckham þegar hann var lítill …
Beckham-hjónin með son sinn Brooklyn Beckham þegar hann var lítill snáði. Samsett mynd

„Fyrir 23 árum breyttist líf mitt að eilífu. Ég upplifði í fyrsta sinn ást sem ómögulegt er að útskýra,“ skrifaði tískugoðið og fyrrum kryddpían, Victoria Beckham, við gamla mynd sem hún deildi á Instagram í tilefni af afmæli frumburðar síns, Brooklyns Beckhams. 

Á myndinni mátti sjá Victoriu halda á Brooklyn á meðan hann borðaði banana. Virðast mæðginin hafa verið í fjölskyldufríi þegar myndin var tekin og notið þess að borða hollt og gott nesti við strönd. Fréttamiðillinn Daily Mail greindi frá.

Stuttu eftir að Victoria minntist áranna með Brooklyn lítinn deildi fjölskyldufaðirinn og fyrrum fótboltakappinn, David Beckham, einnig gamalli mynd af sér og afmælisdrengnum og rifjaði upp gamla góða tíma.

Myndin af þeim fegðum er með því krúttlegasta sem hefur farið á veraldarvefinn en á henni heldur David á Brooklyn þegar hann er kornabarn. Miðað við holdafar Brooklyns frá þessum tíma hefur hann verið óragur við að drekka úr brjósti móður sinnar eða súpa af pela. Sætar ungbarnafellingarnar og sólgleraugunum gera hann einstaklega krúttlegan. 

„Til hamingju með afmælið frábæri drengurinn minn. Við elskum þig svo mikið,“ er meðal annars sem David skrifaði við myndafærsluna. Hamingjuóskum hefur rignt yfir Beckham-fjölskylduna en þau hjónin eru þekkt fyrir að vera samheldin og tekist vel til við að koma börnum sínum fjórum á laggirnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert