Var ánægð með veisluna og allar gjafirnar

Sara Lind Ólafsdóttir fermdist í fyrra.
Sara Lind Ólafsdóttir fermdist í fyrra. Ljósmynd/Kristín Þorgeirsdóttir

Dóttir Ingu Reynisdóttur, Sara Lind, fermdist í fyrra. Öll fjölskyldan fór í myndatöku og var ljósmyndum komið fyrir á borðum veislugesta, sem skapaði skemmtilega stemningu og ráp á milli borða.

Inga Reynisdóttir fasteignasali hélt fallega veislu fyrir Söru Lind dóttur þeirra Ólafs Tryggvasonar akkúrat á þeim tíma þegar 50 manns máttu koma saman í fyrra. Þau Inga og Ólafur eiga marga góða vini og fjölskyldu, svo það reyndist erfitt að halda gestunum innan ákveðins fjölda, þótt það hafi tekist á endanum. Þau eiga fjögur börn samanlagt, en Sara Lind fermdist 13. mars í fyrra, og er yngsta barn þeirra hjóna sem fermist. „Veislan var yndisleg í fallegum sal í Áskirkju. Veðrið lék við okkur og tókst allt vel þrátt fyrir ástandið í fyrra. Við vorum mjög heppin og náðum að halda veisluna á milli strangra reglna.

Undirbúningurinn litaðist af ástandinu, en við reyndum að gera fermingardaginn eins gleðilegan og eftirminnilegan fyrir dóttur okkar og hægt var. Í raun fór mesti tíminn í að finna rétta kjólinn og skó á Söru Lind.“

Voru með ljósmyndirnar tilbúnar fyrir veisluna

Ákveðið var að taka fermingarmyndirnar áður en veislan var haldin til að minnka allt stress á fermingardaginn sjálfan. „Ljósmyndatakan var daginn sem hún fór í prufugreiðsluna sem gerð var á Solid hári.

Við rétt náðum smá glugga í afléttingum þegar bjóða mátti 50 manns. Helgina á eftir var hámark þeirra sem saman máttu koma 20 manns þannig að við rétt sluppum að því leytinu til. Það var mjög erfitt að velja og hafna hverjum átti að bjóða. Ég útbjó excel-skjal með nöfnum gestanna. Þeir sem voru búnir að fá kórónuveiruna töldust ekki með í gestafjöldanum, það sama var upp á teningnum með börn undir tólf ára aldri. Þetta var flókið en svo þess virði að leggja aðeins tíma í boðslistann,“ segir Inga.

Fermingarbarnið hafði ákveðnar skoðanir á veislunni. „Sara Lind vildi hafa salinn í fallegum fjólubláum lit í bland við silfraðan, sem kom mjög vel út að mínu mati. Ég er hrifin af því að hafa hringborð í veislum því þá skapast svo skemmtileg stemning þar sem fólk nær betur að tala saman en ella.“

Ljósmynd/Kristín Þorgeirsdóttir

Afslappað umhverfi í myndatökunni

Inga er alltaf glæsileg til fara og gerði sitthvað fyrir sig fyrir fermingu dóttur sinnar. Meðal annars fékk hún sér nýtt pils, nýja eyrnalokka og svo lét hún setja huggulegar strípur í hárið. Var ekki mikil stemning í ljósmyndatökunni? „Jú, en mamman kveið held ég mest fyrir henni! Sem betur fer vorum við með frábæran ljósmyndara, hana Kristínu Þorgeirsdóttur hjá Krissý Ljósmyndastúdíói, sem gerði myndatökuna svo skemmtilega og frjálslega. Öllum leið vel hjá henni en fermingarbarnið vildi hafa okkur öll með sér í myndatökunni. Vegna þess var mjög mikið stuð hjá okkur og eftir á að hyggja er ég mjög svo þakklát fyrir myndirnar. Ég get hiklaust mælt með Kristínu í fermingarmyndatökuna.“

Inga Reynisdóttir fasteignasali fermdi dóttur sína, Söru Lind, í fyrra.
Inga Reynisdóttir fasteignasali fermdi dóttur sína, Söru Lind, í fyrra. Ljósmynd/Kristín Þorgeirsdóttir

Gerðu alla uppáhaldsrétti fermingarbarnsins

Hvernig veitingar voruð þið með í veislunni? „Við bæði pöntuðum mat og gerðum sjálf veislurétti, sem mér finnst góð blanda fyrir þá sem vilja létta vinnuna í veislunni. Sara Lind vildi hafa sushi, þannig að það var að sjálfsögðu pantað. Pabbi hennar gerði sína góðu rétti og svo gerði ég nokkrar kökur sem Sara Lind heldur mikið upp á og bað mig að gera fyrir sig.“ Inga telur nokkuð víst að nú þegar fólk getur haldið stærri veislur sé mikilvægt að hafa nóg af veitingum og að gera ráð fyrir því að fólk sitji lengur en vani er, til að tala saman. „Svo er alltaf gott að hafa eitthvað skemmtilegt að gera. Ljósmyndarinn hafði prentað út allar myndirnar úr myndatökunni í venjulegri stærð og við dreifðum þeim á borðin. Við það skapaðist skemmtileg umræða og flakk á milli borða þegar fólk var að skoða myndirnar. Svo máttu gestirnir eiga þær myndir sem þeir vildu,“ segir Inga.

Ljósmynd/Kristín Þorgeirsdóttir

„Mér þótti mjög gaman að hafa alla með mér“

Fermingarfræðslan var létt og skemmtilegri en ég átti von á. Það var samt oft ekki hittingur vegna kórónuveirunnar, þannig að minn árgangur missti kannski aðeins af upplifuninni að vera í fermingarfræðslu eins og hún er á aðeins hefðbundnari tíma.“

Var í hvítum Nike-strigaskóm

Í hverju varstu í fermingunni?

„Ég var í hvítum kjól frá NTC og hvítum Nike-strigaskóm.“

Hvaða gjöf stendur upp úr sem þú fékkst í fermingargjöf?

„Það er ferð sem ég fékk til útlanda, sem ég ætla að fara í núna í vor með bestu vinkonu minni sem fermdist einnig í fyrra.“

Hvaða þátt tók fjölskyldan og systkin í fermingunni?

„Þau tóku öll mikinn þátt í henni og gerðu daginn skemmtilegri. Mér þótti mjög gaman að hafa alla með mér á fermingardaginn.“

Hélstu ræðu í veislunni og hvernig lýsir þú upplifuninni að fermast?

„Ég hélt ekki stóra ræðu en bauð alla velkomna og að fá sér að borða. Mér fannst það mjög gaman en smá stressandi.“

Söru Lind fannst gaman að fara heim eftir veisluna að opna gjafirnar með sínum nánustu.

„Ég var mjög ánægð með bæði veisluna og allar flottu gjafirnar.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert