Sjötta barnið mikið sjokk

Josie Cunningham ásamt fimmta barni sínu.
Josie Cunningham ásamt fimmta barni sínu. Skjáskot/Instagram

Breska fyrirsætan Josie Cunningham greindi frá því nýlega að hún væri gengin fjóra mánuði með sitt sjötta barn. Þungunin kom Cunningham verulega á óvart en hún komst að því að hún bæri barn undir belti eftir að hafa verið lögð inn á sjúkrahús vegna yfirliðs og óhóflegra uppkasta. 

„Þetta er svolítið mikið sjokk krakkar en ég var nýlega lögð inn á spítala og komst þá að því að ég er komin fjóra mánuði á leið og á von á lítilli prinsessu,“ skrifaði Cunningham á Instagram á dögunum þar sem hún deildi fyrstu sónarmyndunum af væntanlegu sjötta barninu. „Ég er hissa og hamingjusöm á sama tíma,“ sagði hún jafnframt.

Cunningham er afar umdeild fyrirsæta en fyrir um tveimur árum viðurkenndi hún að hafa átt í kynferðislegu sambandi við stjúpson sinn þrátt fyrir að hafa eignast barn með föður hans, þáverandi sambýlismanni sínum, skömmu áður. Það er þó ekki eina hneykslið sem hún hefur valdið heldur var hún mikið á milli tannanna á fólki þegar hún reyndi að selja aðgöngumiða inn á fæðinguna þegar hún gekk með eitt af börnum sínum árið 2014. Fréttamiðillinn Daily Mail greindi frá.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert