Misstu fóstur á 9 viku

Kian Egan og Jodi Albert ásamt sonum sínum þremur.
Kian Egan og Jodi Albert ásamt sonum sínum þremur. Skjáskot/Instagram

Kian Egan, söngvari strákabandins Westlife og eiginkona hans, leikkonan Jodi Albert, sendu frá sér átakanlega tilkynningu á Instagram á dögunum þar sem þau sögðu frá fósturláti.

„Við misstum litla barnið okkar á níundu viku,“ skrifaði Albert í langri og átakanlegri færslunni. „Þetta er í annað sinn sem ég missi fóstur á þremur og hálfu ári,“ viðurkenndi hún og sagði að þessi missir hafi komið öðruvísi við fjölskylduna en í fyrra skiptið. „Við leyfðum okkur að vera spennt fyrir nýjustu viðbótinni og vorum farin að dreyma um framtíðina með fallega engilinn okkar innanborðs,“ sagði Albert.

Aðdáendur parsins höfðu rekið augun í stækkandi kvið Alberts á nýlegum myndum og látið athugasemdir um mögulega þungum við myndirnar. Albert fann sig því knúna til að upplýsa aðdáendur sína um sársaukafullt fósturlátið. Fréttamiðillinn Daily Mail greindi frá.

„Ég gat ekki beðið eftir því að komast í 12 vikna sónarinn en því miður misstum við litla barnið okkar,“ deildi hún með 127 þúsund Instagram-fylgjendum og verður að teljast nokkuð hugrökk. „Ég hef skrifað þessa færslu oft og eytt henni jafn oft þar sem mesti ótti minn er að segja fólki frá þessu en ég veit að það getur verið gagnlegt fyrir marga sem þurfa að ganga í gegnum það sama og við.“

Hjónin eiga þrjár syni saman; Koa, tíu ára, Zekey, sex ára og Cobi, fjögurra ára. 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert