Farið að glitta í bumbu?

Kourtney Kardashian og Travis Barker á Grammy-verðlaunahátíðinni.
Kourtney Kardashian og Travis Barker á Grammy-verðlaunahátíðinni. AFP

Turtildúfurnar Kourtney Kardashian og Travis Barker hafa verið mikið í sviðsljósinu undanfarið og mætt saman á hvern viðburðinn á fætur öðrum. Parið lét sjá sig á Grammy-verðlaunahátíðinni um liðna helgi og héldust hönd í hönd á rauða dreglinum. Aðdáendur parsins eru sannfærðari sem aldrei fyrr um að Kardashian beri barn þeirra undir belti. Svartur samfestingurinn sem hún klæddist á hátíðinni beri þess merki.

Parið hefur tjáð sig opinberlega um löngun sína til að eignast barn saman. Í nýrri stiklu fyrir raunveruleikaþættina The Kardashians sem sýndir eru á streymisveitunni Hulu, viðurkenna þau Kardashian og Barker að þau þrái frekari skuldbindingu við hvort annað. 

AFP

Twitter-notendur bentu á að kviður Kardashians væri orðinn örlítið framstæður og töldu miklar líkur á að hún sé ófrísk. 

„Er Kourtney ólétt? Ég held ég sjái smá bungu,“ tísti einn en Kardashian klæddist svörtum samfestingi sem var opinn á sitthvorri hliðinni þar sem skein í rifbein hennar. „Kourtney er ólétt,“ skrifaði annar og virtist sannfærður. 

AFP

Parið hefur ekki staðfest sögusagnir af óléttunni en þær hafa verið ansi þrálátar síðustu misseri. Parið lét vel að hvort öðru líkt og þeirra er von og vísa. Klikkuðu þau ekki á að deila tungukossum fyrir framan ljósmyndarapressuna en slíkir kossar eru löngum orðnir að hefð hjá þeim, hvað sem öðrum finnst svo sem um það.

AFP




mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert