Formóðir fjölskyldunnar vill fleiri barnabörn

Systurnar og móðurinn í Keeping Up With The Kardashians.
Systurnar og móðurinn í Keeping Up With The Kardashians. Ljósmynd/Keeping Up With The Kardashians

Fyrirsætan Kendall Jenner sagði í viðtali við E! News Daily Pop á dögunum að mamma hennar, Kris Jenner, sé farin að ýta á hana til að eignast barn. 

Þrátt fyrir að barnalánið í Kardashian/Jenner-fjölskyldunni fari ört vaxandi þá þykir Kris Jenner tími til kominn að Kendall verði ólétt og eignist barn.

„Er það ekki undir mér komið?“ svaraði Kendall óhikandi þegar mamma hennar þrýsti á hana og sagði þungun vera orðna löngu tímabæra í hennar lífi.

Kendall Jenner er eina systirin sem ekki hefur eignast barn enn sem komið er. Mamma hennar virðist hafa miklar áhyggjur af barnaleysinu og hefur spurt hana þrálátar spurningar því tengdu undanfarið. Kendall sagði mömmu sína hafa verið örlítið ónærgætna og óþolandi en hún ætti það til að senda skilaboð upp úr þurru sem segðu eitthvað á þessa leið: „Ég held að það sé kominn tími. Nú er hárréttur tími.“

Kris Jenner segir skilaboðin einungis vera vingjarnlega ábendingu til Kendall en hún er meira en til í fleiri barnabörn. „Ætlarðu ekki örugglega að verða foreldri einn daginn?“ spurði hún dóttur sína. „Hundrað prósent mamma mín,“ svaraði Kendall.  

Kendall Jenner opinberaði ástarsamband sitt við NBA-stjörnuna, Deven Booker, á degi ástarinnar fyrir rúmu ári síðan. Parið hefur ekki talað opinskátt um framtíðaráform sín saman en allt virðist leika í lyndi hjá því og ekki alls kostar ólíklegt að þau komi til með að eignast börn í nánustu framtíð. 


 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert