Þakkaði læknum fyrir líf sonar síns

Jimmy Kimmel fagnaði 5 ára afmæli Billys litla á dögunum.
Jimmy Kimmel fagnaði 5 ára afmæli Billys litla á dögunum. AFP

Spjallþáttastjórnandinn Jimmy Kimmel fagnaði 5 ára afmæli sonar síns Billy fyrr í vikunni. Kimmel sagði í færslu á Instagram að þau stæðu ætíð í þakkarskuld við lækna og hjúkrunarfræðinga sem hefðu bjargað lífi Billys litla. 

Billy litla eignuðust þau Kimmel og eiginkona hans Molly McNearney í apríl árið 2017. Hann fæddist með alvarlegan hjartagalla og þurfti að fara í stóra aðgerð á hjarta þegar hann var aðeins þriggja daga gamall. 

Kimmel sagði frá aðgerðinni tveimur vikum eftir hana og ræddi hversu hræddur þau hjónin hefðu verið. „Lengstu þrjár klukkustundir lífs míns, en aðgerðin gekk vel,“ sagði Kimmel. 

View this post on Instagram

A post shared by Jimmy Kimmel (@jimmykimmel)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert