Þorvaldur Davíð og Hrafntinna eignuðust son

Þorvaldur Davíð Kristjánsson og Hrafntinna Karlsdóttir.
Þorvaldur Davíð Kristjánsson og Hrafntinna Karlsdóttir. Ljósmynd/Haraldur Jónasson

Leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson og lögfræðingurinn Hrafntinna Karlsdóttur eignuðust son um helgina. Hjónin eru búsett í Svíþjóð og kom sonurinn í heiminn í Stokkhólmi. Hrafntinna greinir frá komu sonarins á samfélagsmiðlum. 

Litli prinsinn hefur fengið nafnið Kristján Karl og segir Hrafntinna að öllum heilsist vel. Þetta er fyrsti sonur þeirra Þorvaldar og Hrafntinnu en fyrir eiga þau tvær dætur. 

Barna­vef­ur­inn ósk­ar þeim inni­lega til ham­ingju. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert