Elísabet og Gunnar eiga von á stúlku

Elísabet Gunnars og Gunnar Steinn eiga von á sínu þriðja …
Elísabet Gunnars og Gunnar Steinn eiga von á sínu þriðja barni. mbl.is/Stella Andrea

Tískubloggarinn Elísabet Gunnarsdóttir og eiginmaður hennar, handboltamaðurinn Gunnar Steinn Jónsson, eiga von á sínu þriðja barni. Hjónin, sem fluttu aftur heim til Íslands á síðasta ári, tilkynntu um óléttuna á Instagram í gær. 

„Ekki bara að byggja heimili, líka að búa til börn,“ skrifaði Elísabet á Instagram en af myndunum að dæma er von á lítilli stúlku. Fyrir eiga þau Elísabet og Gunnar dótturina Ölbu Mist og soninn Gunnar Manuel. Við flutningana til landsins festu hjónin kaup á fallegu húsi í Skerjafirðinum og hafa staðið í miklum framkvæmdum á húsinu. 

Elísabet er einn vinsælasti tískubloggari landsins en hún stýrir tískublogginu Trendnet. Gunnar er atvinnumaður í handbolta og hefur leikið með liðum víða um Evrópu. 

Barnavefurinn óskar fjölskyldunni innilega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert