Alveg sama um frægð móður sinnar

Börnum Cate Blanchett er sama þó mamma þeirra sé fræg.
Börnum Cate Blanchett er sama þó mamma þeirra sé fræg. AFP

Óskarsverðlaunaleikkonan Cate Blanchett segir að krakkarnir hennar séu lítið að velta sér upp úr því að hún sé fræg kvikmyndastjarna. Blanchett hlaut hin virðingarverðu Chaplin verðlaun á dögunum og segir að krakkarnir hennar hafi ekki hugmynd um það. 

„Þau hafa enga hugmynd, sko enga,“ sagði Blachett í viðtali við Page Six á mánudag. „Ég sagði þeim að ég væri að fara til New York í 36 klukkustundir og kæmi aftur á miðvikudag. Eitt þeirra fær afhent verðlaun í skólanum og þau sögðu bara okei.“

Blanchett á fjögur börn með eiginmanni sínum Andrew Upton, Dashiell sem er 20 ára, Roman 18 ára, Ignatius 14 ára og Edith sem er 7 ára. 

Blanchett hefur leikið hverri kvikmyndinni á fætur annarri og unnið tvenn Óskarsverðlaun fyrir kvikmyndirnar The Aviator og Blue Jasmine.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert