Sjö ára Karlotta alveg eins og pabbi

Karlotta prinsessa er sjö ára í dag.
Karlotta prinsessa er sjö ára í dag. AFP

Karlotta prinsessa fagnar sjö ára afmæli sínu í dag og af því tilefni gaf höllin út glænýjar myndir af afmælisbarninu. Karlotta litla þykir gríðarlega lík föður sínum, Vilhjálmi Bretaprins. 

Móðir hennar, Katrín hertogaynja af Cambridge, smellti myndunum af afmælisbarinu um helgina. Vilhjálmur, Katrín og börn þeirra þrjú eyddu helginni á sveitasetri sínu í Norfolk en myndirnar eru teknar í garðinum þar.

Á einni myndinni er hundurinn þeirra, Orla, en hundurinn bættist í fjölskylduna á síðasta ári eftir að hundurinn þeirra Lupo hélt á vit feðra sinna.

Það er frídagur í Bretlandi í dag og því þarf hin sjö ára afmælisstúlka ekki að fara í skólann í dag.

Karlotta og hundurinn Orla.
Karlotta og hundurinn Orla. AFP
Katrín hertogaynja tók myndir af dóttur sinni um helgina.
Katrín hertogaynja tók myndir af dóttur sinni um helgina. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert