Þrjú börn á leiðinni með sitthvorri konunni

Grínistinn Nick Cannon.
Grínistinn Nick Cannon. Skjáskot/Instagram

Grínistinn og þáttastjórnandinn Nick Cannon greindi frá því í maímánuði að hann ætti von á sínu áttunda barni með fyrirsætunni Bre Tiesi. Fyrr í þessari viku neitaði hann ekki fyrir það að hann ætti von á tveimur börnum í viðbót þegar þær sögusagnir voru bornar upp á hann.

„Við skulum orða það þannig að storkurinn er á leiðinni,“ sagði Cannon kátur í bragði aðspurður um væntanlega fjölgun. Cannon var gestur í hlaðvarpsþættinum Lip Service hjá Angelu Yee á dögunum en þar sat hann fyrir svörum um ýmislegt sem sneri að einkalífi hans.

Aðdáendur Cannons eru allt annað en sáttir við opinberun hans á þessari fjölgun í fjölskyldunni. Þykir mörgum hann vera einum of fjölþreifinn, enda á hann sjö börn með fimm barnsmæðrum líkt og frægt er orðið. Fréttamiðillinn Page Six greindi frá.

Ein af barnsmæðrum Cannons, Abby De La Rosa, tilkynnti nýlega á Instagram að hún væri barnshafandi og mögulega væri hún ófrísk af tvíburum. Hún upplýsti þó ekki um föðurinn en öll spjót beinast að Cannon. Þau Cannon og De La Rosa eignuðust saman tvíburana Zion og Zillion fyrir tæplega ári og hafa verið í góðum tengslum síðan. 

Ef sögusagnirnar reynast réttar, á Cannon von á þremur börnum á næstu mánuðum og verður orðinn tíu barna faðir von bráðar.

Hér að neðan má heyra viðtalsbútinn við Nick Cannon, sem hefst þegar um þrjár mínútur eru liðnar af myndskeiðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert