Fann fyrir öfund í garð dóttur sinnar

Michael Owen ásamt dóttur sinni, Gemmu Rose.
Michael Owen ásamt dóttur sinni, Gemmu Rose. Skjáskot/Instagram

Fyrrum fótboltakappinn, Michael Owen, upplifði svo mikla öfund í garð mæðgnasambands eiginkonu sinnar, Louise Bonsall, við elstu dóttur þeirra, Gemmu, að hann þurfti að leita sér aðstoðar vegna þess á sínum tíma. 

Geðheilsa Owens hrakaði mikið eftir að hann hætti í boltanum og átti hann í fullu fangi með að halda sér í andlegu jafnvægi. Árið 2020 gaf Owen út sjálfsævisögu þar sem hann fór yfir æviskeið sitt, knattspyrnuferilinn, geðheilsuna ásamt því að uppljóstra ýmsu áður ósögðu efni.

Var kominn á dimman stað

 „Vegna þeirra djöfla sem bjuggu innra með mér var ég í mörg ár mjög harður við Louise um málefni sem ég vissi að myndu hreyfa mest við henni - til dæmis náið samband hennar við dóttur okkar, Gemmu,“ segir í sjálfsævisögunni sem heitir Reboot. Fréttamiðillinn Daily Star greindi frá.  

„Mér til mikillar undrunar fann ég sjálfan mig standandi á bjargsbrún árið 2014. Ég glímdi við erfitt hugarfar og hegðun sem hafði leitt mig á þann stað að ég þurfti að leita mér aðstoðar hjá fagaðila,“ sagði Owen sem hafði dottið niður í djúpan dal á þessum tíma og þurfti að taka á honum stóra sínum í kjölfarið.

„Ekkert af þessu hafði neitt um það að segja hvernig mér leið gagnvart Gemmu eða Louise. Ég elska þær báðar af öllu mínu hjarta.“

Dóttir Owens, Gemma Rose, hefur verið mikið í sviðsljósinu upp á síðkastið vegna þátttöku sinnar í raunveruleikaþáttunum vinsælu, Love Island. Auk Gemmu eiga hjónin Owen og Louise Bonsall þrjú önnur börn. Þau heita Emily May, Jessica og James og eru á aldrinum 12-16 ára.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert