Braut óvart tönn systur sinnar

Miles og Luna með mömmu sinni, Chrissy Teigen, í baði.
Miles og Luna með mömmu sinni, Chrissy Teigen, í baði. Skjáskot/Instagram

Sonur fyrirsætunar Chrissy Teigen og söngvarans John Ledgend braut tönn hjá systur sinni. Sonur þeirra Miles, sem er fjögra ára, sparkaði í andlitið á systur sinni sem heitir Luna og er sjö ára. Við sparkið  missti hún tönn. 

Teigen deildi myndbandi af þessu á Instagram. Börnin voru á hlaupum um húsið á baðfötum og það má heyra Miles segja „Ég tók tönn úr Lunu, ég bara sparkaði í munninn á henni og hún bara datt út,“ sagði strákurinn æstur. 

Teigen útskýrir svo að þetta hafi nú alls ekki verið viljandi gert og birtir mynd af dóttur sinni þar sem hún brosir og sýnir tannleysið og heldur á tönninni sinni. Það getur ýmislegt gerst í hita leiksins.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert