Fagnar 9 ára afmæli frumburðarins

Mæðgurnar North West og Kim Kardashian.
Mæðgurnar North West og Kim Kardashian. Skjáskot/Instagram.

Athafnakonan Kim Kardashian fangaði á dögunum níu ára afmæli elstu dóttur sinnar, North West. 

„Til hamingju með afmælið elskan mín, besta vinkona mín sem er mér allt. Það er enginn eins og þú. Heiðarlega, skapandi og fyndna stelpan mín með besta hjartað. Ég elska að vera mamma þín, TAKK fyrir að deila þessari vegferð með mér. Elska þig til tunglsins,“ skrifaði Kim undir myndbirtingu af þeim mæðgum á Instagram síðu sinni. 

View this post on Instagram

A post shared by @kimkardashian

Ásamt North á Kim einnig dótturina Chicago, 4 ára og synina Saint, 6 ára og Psalm, 3 ára, með fyrrverandi eiginmanni sínum Kanye West. 

Amma North, Kris Jenner var fyrst til að óska henni til hamingju með afmælið og deildi nokkrum vel völdum myndum af barnabarni sínu í gegnum árin. „Til hamingju með afmælið fallega barnabarnið mitt North.“

Skjáskot/Instagram.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert