Deildi óvenjulegri og áður óséðri mynd

Kylie Jenner og Travis Scott.
Kylie Jenner og Travis Scott. AFP

Athafnakonan og snyrtivörumógúllinn Kylie Jenner heiðraði barnsföður sinn, rapparann Travis Scott, fyrir hönd barna þeirra tveggja í tilefni feðradagsins um liðna helgi.

Jenner deildi óvenjulegri mynd úr einkalífinu, þar sem sjá mátti Scott liggja uppi í hjónarúmi að borða núðlur, umkringdan börnum sínum. Jenner er ekki vön að gefa aðdáendum sínum mikla innsýn inn í fjölskyldulífið og hversdagslegar athafnir þeirra, svo myndefnið var skemmtileg viðbót við glansmyndina sem hún sýnir gjarnan á samfélagsmiðlum.

Travis Scott nýtur lífsins uppi í rúmi með núðluskál og …
Travis Scott nýtur lífsins uppi í rúmi með núðluskál og börnum sínum tveimur. Skjáskot/Instagram

„Gleðilegan feðradag pabbiiii, við elskum þig,“ skrifaði Jenner við myndafærsluna. Fréttamiðillinn People greindi frá.

Frá því að þau Scott eignuðust son sinn í febrúar á þessu ári, hafa þau ekki viljað sýna andlit hans opinberlega. Þá hafa þau heldur ekki tilkynnt um rétt nafn hans eftir að þau hættu við að nefna hann Úlf, líkt og þau höfðu áður greint frá. Það sama á ekki við Stormi - öll heimsbyggðin veit hver hún er.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert