Eignaðist stúlku með tólf fingur

Áhrifavaldurinn Tammy Hembrow.
Áhrifavaldurinn Tammy Hembrow. Skjáskot/Instagram

Ástralski áhrifavaldurinn Tammy Hembrow eignaðist stúlku hinn 18. júní síðastliðinn með unnusta sínum, Matt Poole. 

Hembrow birti myndir frá fæðingunni á Instagram reikningi sínum, en hún var komin rúmar tvær vikur fram yfir settan dag þegar stúlkan mætti í heiminn. 

View this post on Instagram

A post shared by Tammy 🐚 (@tammyhembrow)

Stúlkan fæddist með tólf fingur, en parið hafði áður deilt því að hún væri með svokallað polydactyly sem Hembrow sjálf, systkini hennar og móðir fæddust öll með.

Þetta er fyrsta barn hennar og núverandi unnusta, en fyrir á Hembrow tvö börn með fyrrverandi unnusta sínum, Reece Hawkins. 

View this post on Instagram

A post shared by Tammy 🐚 (@tammyhembrow)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert