Elskar og dáir Katy Perry

Miranda Kerr fagnar því að sonur hennar eigi fjóra foreldra.
Miranda Kerr fagnar því að sonur hennar eigi fjóra foreldra. AFP

Miranda Kerr segist elska Katy Perry sem er stjúpmóðir sonar hennar sem hún deilir með leikaranum Orlando Bloom.

Í viðtali við tímaritið LVR opnar hún sig um fjölskyldumynstur hennar. 

Katy Perry er trúlofuð Orlando Bloom og eiga þau eina dóttur saman. Þá er Kerr gift Evan Spiegel og eiga þau tvö börn saman. Bloom og Kerr eiga saman ellefu ára son Flynn.

„Ég elska Katy og er svo þakklát að Orlando hafi fundið einhverja sem hann er hamingjusamur með,“ sagði Kerr.

„Flynn sonur okkar á þá fjóra hamingjusama foreldra sem semur vel. Þegar við hættum saman þá var eitt það mikilvægasta sem við ákváðum var að við myndum alltaf spyrja okkur hvað væri það besta fyrir barnið okkar áður en við tækjum ákvarðanir. Við verðum fjölskylda alveg sama hvað gerist.“

„Evan og Orlando eru góðir vinir og Katy og ég erum góðar vinkonur. Þetta er mikil blessun og þarf ekki að vera neitt öðruvísi. Svona kringumstæður geta verið jákvæðar fyrir alla.“

Spiegel maður hennar Kerr tekur í sama streng. „Ég átti aldrei að koma í staðinn fyrir föður Flynn. Ég varð bara hluti af teyminu. Þetta er kosturinn við Kerr, hún er með stórt hjarta og það eru allir velkomnir.“

Evan Spiegel og Miranda Kerr.
Evan Spiegel og Miranda Kerr. AFP
Miranda Kerr og Orlando Bloom eiga einn son saman.
Miranda Kerr og Orlando Bloom eiga einn son saman. ADRIAN SANCHEZ-GONZALEZ
Katy Perry og Orlando Bloom eiga eina dóttur saman.
Katy Perry og Orlando Bloom eiga eina dóttur saman. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert