Gæti hugsað sér fleiri börn

Rich Paul og Adele.
Rich Paul og Adele. AFP

Tónlistarkonan Adele ítrekaði í viðtali við BBC í vikunni að hún gæti vel hugsað sér að eignast börn með kærasta sínum, umboðsmanninum Rich Paul. Þetta er í annað sinn á nokkrum vikum sem söngkonan viðrar áhuga sinn á frekari barneignum í viðtali. 

„Ég væri klárlega til í fleiri börn,“ sagði Adele þegar spyrillinn Lauren Laverne spurði hana hvernig hún sæi sjálfa sig fyrir sér eftir tíu ár. „Það væri æðislegt ef við gætum það. Ef ekki, þá á ég Angelo. Ég vil bara vera hamingjusöm,“ sagði söngkonan. 

Adele á soninn Angelo, sem er níu ára, með fyrrverandi eiginmanni sínum Simon Konecki. Þau skildu árið 2019. Hún sagði sömuleiðis í hæaðvarpinu hjá BBC að það hafi komið henni á óvart hversu vel það hafi gengið hjá þeim Konecki að ala upp son þeirra saman eftir skilnaðinn. 

„Þetta var í raun aldrei mjög flókið því við erum svo góðir vinir. Aldrei í lífi mínu er barnið mitt að fara upplifa klikkaðan skilnað,“ sagði Adele.

Paul á þrjú börn úr fyrra sambandi og sagði Adele að hann hafi eignast börnin sín mjög ungur og að hann þekki vel að ala upp börn með fyrrverandi konu sinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert