Tilkynnti óléttuna á tískusýningu

Ljosmynd/Instagram

Fyrirsætan Nicole Williams og eiginmaður hennar Larry English eiga von á barni saman. Parið tilkynnti um óléttuna á tískupalli Miami Swim Week á dögunum. 

Hjónin gerðu smá viðburð úr tilkynningunni, en Williams gekk í slopp út á tískupallinn. English kom svo til hennar, leysti frá sloppnum og kyssti á henni kviðinn við mikinn fögnuð áhorfenda.

English, sem spilar í NFL deildinni, kyssti hana svo og þau gengu saman af pallinum. Hjónin hafa verið gift í fimm ár og er þetta þeirra fyrsta barn. Eftir tískusýninguna birti Williams myndir af óléttubumbunni sinni á Instagram. 

Myndband af tilkynningunni má sjá hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert