Borðar eigin fylgju eftir fæðingu

Sharna Burgess og Brian Austin Green.
Sharna Burgess og Brian Austin Green.

Dansarinn Sharna Burgess greindi frá því á Instagram að hún borði eigin fylgju í von um fljótari bata eftir fæðingu, en hún tók á móti sínu fyrsta barni með kærasta sínum, Brian Austin Green í byrjun júlí. 

Burgess opnaði spurningarbox á miðli sínum í gær þar sem tilvonandi móðir bað um frekari upplýsingar um fylgjupillur sem hún væri að taka inn. 

Skjáskot/Instagram

„Ég mæli eindregið með þessu. Ég lét hjúkrunarfræðinginn okkar, sem er líka doula sækja fylgjuna mína. Hún vann úr fylgjunni á þann hátt sem þarf og setti hana í hylki fyrir mig. Ég tek tvö á dag eins og vítamín,“ svaraði Burgess. 

Hún hélt áfram og sagði pillurnar eiga að hjálpa við alhliða bata eftir fæðingu. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem fréttir berast af stjörnum sem gæða sér á eigin fylgju, en stjörnur á borð við Kim og Khloé Kardashian, Chrissy Teagan og Hillary Duff hafa talað opinskátt um fylgjuát. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert