Leona Lewis orðin móðir

Leona Lewis og eiginmaður hennar tóku á móti dóttur sinni …
Leona Lewis og eiginmaður hennar tóku á móti dóttur sinni hinn 22. júlí síðastliðinn. Skjáskot/Instagram

Tónlistarkonan Leona Lewis tók á móti sínu fyrsta barni með eiginmanni sínum, Dennis Jauch hinn 22. júlí síðastliðinn. Stúlkan hefur þegar fengið nafnið Carmel Allegra. 

Lewis deildi fallegri mynd af dóttur sinni á Instagram reikningi sínum í gær. „Og þá urðum við þrjú. Litla Carmel Allegra okkar fæddist 22.7.22,“ skrifaði söngkonan undir myndina. 

Lewis var um tíma ein vinsælasta söngkona Bretlands, en hún vann þriðju seríu The X Factor í Bretlandi. Hún kynntist eiginmanni sínum árið 2010 á tónleikaferðalagi hennar, en þau giftu sig fyrir þremur árum á Ítalíu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert