Allir geta tekið þátt í keppninni

Sylvía með hundinn sinn Oreo sem hefur verið henni stoð …
Sylvía með hundinn sinn Oreo sem hefur verið henni stoð og stytta í námi og er hluti af nýju verkefni hennar.

Er hægt að keppa í því að standa við dagsskipulag? Já, Sylvía Erla Melsteð á heiðurinn af sérstakri skipulagsbók til að hjálpa krökkum að raða niður verkum dagsins og keppa við sjálfa sig og nemendur annarra skóla.

„Oreo hundurinn minn átti stóran þátt í því að ég komst í gegnum námið í Verzló vegna lesblindu minnar en ég las allt upphátt fyrir hann og hann hlustaði alltaf á mig. Oreo hefur líka verið hluti af öllum þeim verkefnum sem ég hef unnið að fyrir aðra sem eru lesblindir,“ segir Sylvía Erla Melsteð.

Hún er óstöðvandi í því að leggja sitt af mörkum til að hjálpa börnum í grunnskóla við námið. Nú hefur hún sent frá sér skipulagsbók fyrir börn í 1. til 3. bekk og þar er Oreo í aðalhlutverki. Bókin er byggð upp eins og dagbók og henni fylgja límmiðar.

„Mig langaði að búa til einhvern skemmtilegan vettvang fyrir krakka þar sem allir geta tekið þátt. Ég hef mikla trú á krökkum á þessum aldri, að þau taki þátt í þessu átaki og geri þetta rosalega vel. Þau eru fylgin sér og hafa keppnisskap,“ segir Sylvía og bætir við að gott skipulag skipti miklu máli í öllu námi.

Hver og einn keppir við sjálfan sig

„Ég hefði sjálf sannarlega viljað læra að skipuleggja mig þegar ég var í grunnskóla en ég áttaði mig ekki á því hversu miklu máli skipulag skiptir fyrr en ég fór í framhaldsskóla. Þá sá ég að því fyrr sem ég náði utan um skipulagið mitt, því meira náði ég að gera yfir daginn.“

Sylvía segir að fyrrnefnt skipulagsátak standi yfir í tuttugu daga en það hefst þann 5. september.

„Átakið virkar þannig að hver og einn keppir við sjálfan sig en í leiðinni fyrir hönd skólans síns. Í skipulagsbókinni býr hver og einn til hvern dag eins og hann eða hún vill hafa hann. Krakkarnir skipuleggja og skrá deginum áður hvenær þau ætla að vakna, borða hollan morgunmat, hreyfa sig, læra, hvenær þau ætla að lesa og svo framvegis. Ég held að það sé mjög gott fyrir krakka að ákveða sjálf hvenær þau læra heima.

Til dæmis eftir að þau hafa gert eitthvað skemmtilegt fyrst. Ég man hvað mér fannst leiðinlegt að það fyrsta sem var sagt við mig eftir að ég kom heim eftir langan skóladag var: „Viltu ekki fara að læra núna?“ Ég þekki þessa tilfinningu mjög vel sem fylgir því að heyra þessi orð, en þegar ég var nýkomin heim þá langaði mig að slaka á og ekki hugsa um lærdóm í einhverja stund.“

Oreo með félaga sínum og nafna hundabangsa og skipulagsbókinni.
Oreo með félaga sínum og nafna hundabangsa og skipulagsbókinni.

Aukastig fyrir hrós og hjálp

Sylvía segir að á hverju kvöldi í tuttugu daga átakinu fari krakkarnir yfir daginn og reikna út stigin sín og skrái.

„Límmiðar með stigum fylgja bókinni sem krakkarnir líma inn. Ef þau til dæmis luku við heimanám á þeim tíma sem þau ætluðu þá fá þau stig, en ef þau fylgja ekki plani í einhverju þá fá þau núll stig þar. Krakkarnir geta nælt sér í aukastig með gömlu góðu gildunum, fyrir að hrósa sjálfum sér, hrósa öðrum, hjálpa til heima, hugsa jákvætt og annað í þeim dúr. Hundurinn Oreo gefur krökkunum líka aukastig fyrir minni skjánotkun, því honum finnst leiðinlegt hvað hann hittir fáa krakka úti á leikvöllum til að leika við. Hann frétti að krakkar væru mikið inni heima að hanga í tölvum.“

Sylvía segir að krakkarnir geti skráð stigin sín daglega inn á slóð á mbl.is: mbl.is/skipulagsbok, en þar verður opnað fyrir skráningar 4. september. Þar geta krakkarnir aðeins séð stöðu sinnar eigin stiga, ekki skólans, og enginn annar getur séð þeirra stig.

Heljarinnar verðlaun í boði

„Ef þau fara í burtu eða geta ekki sett stigin inn á vefinn af einhverjum ástæðum, þá geta þau skráð stigin þrjá daga aftur í tímann. Hverri bók fylgir bókanúmer sem er aftan á plastinu utan um bókina. Gott er að taka límmiðann af plastinu og líma á bókina. Krakkarnir skrá sig inn með þessu númeri þegar þau skrá stigin sín inn á mbl.is.

Að tuttugu daga átakinu loknu tökum við saman hjá hvaða skóla krakkar hafa skráð flest stig fyrir að fylgja eftir eigin skipulagi,“ segir Sylvía. Hún bætir við að vinningsskólinn fái heljarinnar verðlaun, hundurinn Oreo mæti á svæðið og hvaðeina. „Við krýnum þann skóla sem hefur best skipulagða nemendur.“

Sylvía segir að inni á mbl.is sé hægt að nálgast skipulagsbókina á pólsku og ensku, til að bera saman við útprentuðu bókina, svo að sem flestir geti tekið þátt.

„Oreo segir að þetta átak snúist um að taka þátt og vera með, að það sé ekki aðalmálið að vinna. Skipulag á ekki að vera pressa og það er allt í lagi þó krökkum takist ekki að fylgja sínu skipulagi alla daga. Þau byrja þá bara næsta dag að reyna að gera betur.“

Bókin mun fást í verslunum Hagkaups frá og með morgundeginum, föstudeginum 19. ágúst, og einnig fæst hún á vefsíðu Hagkaups: hagkaup.is, undir vörumerkjasíða hjá snyrtivörum. Tvær fyrstu vikurnar í átakinu verður bókin send frítt út á land.

Gaman að kynnast krökkunum

Skipulagsbókin er eitt af nokkrum verkefnum sem Sylvía hefur staðið fyrir og tengjast námi og börnum. Snemma á síðasta ári var frumsýnd á RÚV heimildarmynd um lesblindu sem Sylvía vann að og í framhaldinu sendi hún frá sér bókina Oreo fer í skólann, en hún fjallar um hundinn Oreo sem kemst að því að hann er lesblindur þegar hann byrjar í skóla. Sylvía lét einnig framleiða hundabangsa sem auðvitað heitir Oreo.

„Ég fékk Hagkaup með mér í lið til að framleiða þessa hundabangsa, því í framhaldi af myndinni minni þá fór ég og heimsótti flest alla grunnskóla á landinu og hélt fyrirlestra um lesblindu. Það var sama á hvaða aldri krakkarnir voru sem ég talaði við, þau höfðu alltaf mikinn áhuginn á hundinum mínum, honum Oreo. Ég fékk meira að segja spurningu um hvort ég vildi selja hann eða hvort þau gætu fengið hvolp undan honum,“ segir Sylvía.

„Þá ákvað ég að gera þessa eftirlíkingu af Oreo, hundabangsa, svo krakkar gætu lært með honum, haft hann uppi á borði hjá sér og látið hann hlusta. Það var mjög gaman að hitta alla þessa krakka í grunnskólum landsins. Það var frábært hversu kurteis þau voru, þau hlustuðu öll með áhuga. Ég var snortin yfir því hversu frábærir þessar krakkar voru, hvað þau vildu vita og læra um lesblindu og spurðu spurninga. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þeim. Framtíðin er sannarlega björt með þessa ungu kynslóð.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert