Sagði þjálfaranum að mamma væri með niðurgang

Þriggja ára dóttir Hilary Duff kom upp um hana á …
Þriggja ára dóttir Hilary Duff kom upp um hana á æfingu. AFP

Leikkonan Hilary Duff lenti í því skemmtilega atviki á dögunum að þriggja ára dóttir hennar, Banks, sagði þjálfurnum sínum á fótboltanámskeiði að mamma hennar væri heima með niðurgang. 

Duff deildi þessari skemmtilegu sögu á Instagram í vikunni og birti smáskilaboð frá aðstoðarkonunni sinni Lauren. „Banks sagði sögu á námskeiðinu í dag: „Mamma mín gerði slæman kjúkling og er núna með niðurgang. Það er það sem gerist ef maður eldar slæman kjúkling“,“ skrifaði Lauren í skilaboðunum til Duff. 

„Vá, ekki treysta börnunum ykkar. Stelpan mín kom upp um mig við fótboltaþjálfarana sína,“ skrifaði Duff.

Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert