Ofurfyrirsæta eignaðist son

AFP

Fyrirsætan Adriana Lima tók á móti sínu þriðja barni hinn 29. ágúst síðastliðinn. Þetta er fyrsta barn Lima með kærasta sínum, Andre Lemmers, en litli drengurinn fæddist í Santa Monica í Kaliforníu í Bandaríkjunum. 

Lima er líklega þekktust fyrir störf sín sem svokallaður Victoria's Secret engill, en fyrir á hún dæturnar Valentinu og Siennu úr fyrra hjónabandi sínu með Marko Jaric. Lima og Jaric skildu árið 2014.

Lima deildi fyrstu myndinni af syni sínum á Instagram á dögunum, en það er nærmynd af augum hans. „Heiðblár er liturinn á milli græns og blás á sýnilega ljósrófinu. Heiðblár er liturinn á vötnum Bora Bora og Maldívaeyja, staðir sem okkur fjölskylduna langar að heimsækja. Heiðblár er núna uppáhalds liturinn okkar. Liturinn á augum drengsins okkar,“ skrifaði Lima við myndina. 

Drengurinn hefur þegar fengið nafnið Cyan Lima Lemmers, en Cyan er enska heitið yfir heiðbláan og því ljóst að augnlitur drengsins hafi veitt parinu innblástur við nafnavalið. 

View this post on Instagram

A post shared by Adriana Lima (@adrianalima)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert