Nýfædd dóttirin fékk „viðbjóðslegar“ líflátshótanir

Nick Cannon er tíu barna faðir, en í ár hefur …
Nick Cannon er tíu barna faðir, en í ár hefur hann tekið á móti þremur börnum með þremur mismunandi konum. AFP

Grínistinn Nick Cannon segir nýfædda dóttur sína og fyrirsætunnar Lanisha Cole hafa fengið „viðbjóðslegar“ dauðahótanir.

Dóttir þeirra, sem hefur þegar fengið nafnið Onyx, kom í heiminn þann 14. september síðastliðinn. Onyx er fyrsta barn þeirra saman en níunda barn Cannons.

Cannon hefur verið áberandi í fjölmiðlum í ár, en hann hefur tekið á móti þremur börnum með þremur mismunandi konum. Hann á nú alls tíu börn og er ellefta barnið á leiðinni. 

Vill að gagnrýninni sé beint að sér

Fram kemur á vef Page Six að Cannon hafi opnað sig á Instagram um alvarlegar hótanir sem nýfædd dóttir hans hafi fengið. Cannon hefur hlotið mikla gagnrýni og hefur beðið fylgjendur sína að beina allri gagnrýni sem þeir hafa í hans garð að honum, en ekki að barnsmæðrum sínum og börnum. 

Cannon segir fólk ekki geta lagst lægra en að hóta barni lífláti. „Sum ykkar eru viðbjóðsleg,“ skrifaði hann á Instagram og bætti við að sama hve illa fólki líki við hann og hans líf gefi það þeim ekki rétt á að hóta barninu hans. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert