Fertug og ófrísk að tólfta barninu sínu

Skjáskot/Instagram

Hin fertuga Carly eignaðist sitt fyrsta barn þegar hún var 18 ára gömul. Síðan þá hefur hún eignast barn á tveggja ára fresti og á nú von á tólfta barninu sínu. 

Fjölskyldan virðist ætla að stækka enn meira þar sem Carly á líka von á sínu fyrsta barnabarni, en hún og elsta dóttir hennar eru báðar ófrískar. 

Nýlega deildi Carly mynd af börnunum sínum ellefu á Instagram-síðu sinni og skrifaði stutta samantekt um hvert þeirra. 

Missti fóstur fyrr á árinu

Elsta dóttir hennar var þó ekki á myndinni, en hún og eiginmaður hennar eru bæði í hernum og eru staðsett í Þýskalandi. Þar deildi hún gleðifregnunum með fylgjendum sínum og sagðist eiga von á sínu fyrsta barnabarni. 

Carly varð ófrísk fyrr á árinu en missti fóstrið. Nokkrum vikum síðar fréttu þau hjónin af óléttu elstu dóttur þeirra. Þau veltu því fyrir sér hvort það væri kominn tími til að hætta að eignast börn sjálf, en stuttu síðar varð Carly ólétt aftur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert