Lítill Jóhannesson bætist í hópinn

Jóhannes Tómasson og Lísbet Sigurðardóttir eiga von á sínu öðru …
Jóhannes Tómasson og Lísbet Sigurðardóttir eiga von á sínu öðru barni. Skjáskot/Instagram

Héraðsdómslögmaðurinn Jóhannes Tómasson og Lísbet Sigurðardóttir, lögfræðingur og formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna, eiga von á sínu öðru barni. Lísbet tilkynnti gleðifregnirnar með færslu á instagram. 

„Spennt tilvonandi vísitölufjölskylda því lítill Jóhannesson ætlar að bætast í hópinn í vor,“ skrifaði Lísbet við fallega mynd af fjölskyldunni, en þar heldur Jóhannes á sónarmynd. 

Lísbet og Jóhannes eiga fyrir dótturina Ólöfu sem kom í heiminn 9. desember 2021.

Barnavefurinn óskar þeim innilega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert