Orðinn stærri en móðursystir hans

Mason Disick er orðinn 13 ára og er hærri en …
Mason Disick er orðinn 13 ára og er hærri en móðursystir sín. skjáskot/Instagram

Mason, sonur Kourtney Kardashian og Scotts Disicks, er formlega orðinn táningur. Það sem meira er, hann er líka orðinn stærri en móðursystir hans, raunveruleikastjarnan Kim Kardashian. 

Kardashian birti mynd af sér og systursyni sínum á 13 ára afmælisdegi Masons. „Dagurinn sem þú varðst hærri en ég er runninn upp,“ skrifaði Kardashian. Mason þurfti ekki að verða neinn skýjakljúfur til að verða hærri en Kardashian, sem er 157 sentímetrar að hæð.

„Ég elska hver þú ert og ég er svo stolt af þér Mason. Velkominn á táningsárin. Til hamingju með daginn,“ hélt hún áfram. 

Mason er elsti sonur Kourtney Kardashian og Disicks.

Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert