Ljóstraði upp leyndarmáli móður sinnar í beinni

Mæðgurnar Jenna Bush Hager og Mila.
Mæðgurnar Jenna Bush Hager og Mila.

Hin níu ára gamla Mila, dóttir þáttastjórnandans Jennu Bush Hager, sló í gegn í jólaþætti móður sinnar, Today with Hoda & Jenna, í vikunni. Stúlkan litla var ekki feimin við sviðsljósið og sagði frá því sem henni fyndist best við móður sína. 

Mila litla ræddi við meðstjórnanda móður sinnar, Hodu Kotb. Kotb sagðist elska það mest við Jennu Bush Hager að hún næði stundum ekki andanum úr hlátri. 

„Já, einu sinni hló hún svo mikið í stofunni okkar að hún pissaði í buxurnar,“ sagði Mila og beindi svo orðum sínum að móður sinni. „Þú þurftir að skipta um náttföt,“ sagði Mila litla. 

Þær Mila og Kotb héldu svo áfram og vildi sú síðarnefnda fá fleiri sögur upp úr þeirri stuttu. „Ég held að Hoda sé að reyna að ná einhverjum sannleiksbombum út, við skulum láta þetta gott heita,“ sagði Bush Hager. Nokkrum sekúndum sagði svo Mila: „Hún er aldrei í nærbuxum. Hún er ekki í nærbuxum núna. Ég sá hana skipta.“

„Ókei, bæ, bæ! Ég elska þig,“ sagði Hager Bush þá hlæjandi þegar hún kom dóttur sinni af sviðinu. 

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem upp úr dúrnum kemur að Bush Hager klæðist ekki nærbuxum. Kotb greindi frá því fyrr í vetur að sér til mikillar undrunar virtist Bush Hager sjaldan vera í brók. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert