Gjafalaus jól á ströndinni

Drew Barrymore ætlar í sólina um jólin.
Drew Barrymore ætlar í sólina um jólin. AFP

Leikkonan Drew Barrymore ætlar að halda upp á jólin í hlýu loftslagi. Hún gefur börnum sínum aldrei jólagjafir en gefur þeim í staðin upplifun. 

„Ég er ein af þessum mömmum sem hljómar eins og andstyggilegur skröggur því ég kaupi ekki gjafir handa þeim. Ég fer alltaf með þeim eitthvað, því ég vil sýna þeim heiminn. Að búa til minningar er svo mikilvægt fyrir mig. Þannig ég hef eiginlega aldrei verið með pakka undir trénu,“ sagði Barrymore í viðtali við Travel + Leisure

Barrymore á börnin Olive og Frankie með fyrrverandi eiginmanni sínum Will Kopelman. Hún segist vanalega plana ferðalögin sín vel og gera dagskrá fyrir hvern dag. Í ár ætlar hún hins vegar að leggja áherslu á hvíld í sólinni.

„Við ætlum að elta sólina. Við vinnum í gluggalausu stúdíói níu mánuði ársins, þannig ég hugsaði: „Hvernig ætli það sé að vera einhverstaðar með sjóndeildarhring?“ Við ætlum að fara á ströndina og vera bara eins og höfrungar og kafa. Ég reyni alltaf að gera eitthvað tengt menningu, en ég held að við stelpurnar séum of þreyttar eftir vinnu og skóla, við þurfum að taka því rólega,“ sagði Barrymore.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert