Baldwin verður afi

Ireland Baldwin á von á sínu fyrsta barni.
Ireland Baldwin á von á sínu fyrsta barni. Skjáskot/Instagram

Ireland Baldwin, elsta dóttir leikarans Alecs Baldwins og leikkonunnar Kim Basinger, á von á sínu fyrsta barni á þessu ári. Leikarinn verður því afi á árinu 2023. 

Ireland er í sambandi með tónlistarmanninum André Allen Anjos, sem er betur þekktur undir listamannsnafni sínu RAC. Þau greindu frá óléttunni á gamlársdag. 

Hún er elst átta systkina, en faðir hennar eignaðist sitt sjöunda barn með eiginkonu sinni Hilariu Baldwin á síðasta ári. Ilaria Ca­tal­ine Irena verður því enn á fyrsta ári þegar hún verður orðin móðursystir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert