„Nýtt ár, sama ég, verðandi móðir“

Jessica Batten og Benjamin McGrath eiga von á barni.
Jessica Batten og Benjamin McGrath eiga von á barni. Skjáskot/Instagram

Love is Blind-stjarnan Jessica Batten á von á barni með eiginmanni sínum Benjamin McGrath. Batten greindi frá þessu í áramótafærslu sinni en von er á litla krílinu í júní á þessu ári. 

Þetta er fyrsta barn parsins saman en fyrir á McGrath tvö börn úr fyrra hjónabandi, Poppy og Ethan. 

Parið trúlofaði sig í september árið 2021 en þá var eitt ár síðan Batten tók þátt í Love is Blind. Þau giftu sig í ágúst á síðasta ári. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert