Fannst hún glötuð móðir í byrjun

Drew Barrymore.
Drew Barrymore. AFP

Leikkonan Drew Barrymore segir að henni hafi liðið eins og hún stæði sig ekki nógu vel í móðurhlutverkinu eftir að hún eignaðist sitt fyrsta barn. Barrymore á tvær dætur með fyrrverandi manni sínum, Will Kopelman, og segist hafa þurft að læra af reynslunni. 

„Allir þessir foreldrar sem eru með allt upp á tíu, hreinlæti, næringu og stundaskrár og mörk, guð blessi ykkur. Ég vissi ekkert um þetta þegar ég eignaðist börn,“ sagði Barrymore í hlaðvarpinu Chicks in the Office á dögunum. 

„Ég var ekki með neinar teikningar og leið eins og ég væri að bregðast þeim mjög oft. Mér fannst þetta ofviða og hugsaði að ég hefði ekki hugmynd um hvað ég væri að gera og þyrfti að læra af reynslunni,“ sagði Barrymore.

Hún sagði enn fremur að margt hefði breyst síðan hún var sjálf barn. Á léttu nótunum sagði hún að foreldrar hefðu skilið börn eftir á bílaplaninu að borða steina svo tímum skipti þegar hún var krakki. 

Hún hvatti foreldra líka til að slá á létta strengi, hafa húmor fyrir sjálfum sér og viðurkenna að þeir vissu ekki alltaf hvað þeir væru að gera í þessu hlutverk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert