Átti fósturvísa með kærasta sem var tvöfaldur í roðinu

Anna Kendrick.
Anna Kendrick. AFP

Leikkonan Anna Kendrick segist hafa verið tilbúin til að stofna fjölskyldu með þáverandi kærasta sínum þegar hún komst að því að hann bar tilfinningar til annarrar konu. Voru þau byrjuð á ferlinu og búin að láta frysta fósturvísa. 

Kendrick nafngreindi ekki þennan fyrrverandi kærasta þegar hún ræddi málið í hlaðvarpsþáttunum Armchair Expert. 

„Ég var með manni, og bjó með þessum manni, hann var eins og eiginmaður minn. Við áttum fósturvísa saman, þetta var manneskjan mín. Síðan eftir um sex ár saman, einhvern tímann á þeim tímapunkti, man ég eftir mér að segja bróður mínum frá því hvernig allt var að byrja að fara úrskeiðis. Mér leið eins og ég byggi með ókunnum manni og vissi ekki hvað var að gerast,“ sagði Kendrick. 

Í hvert skipti sem hún reyndi að ræða samband þeirra segir hún að hann hafi öskrað á hana. Hún segir líka frá því hvernig hann heimsótti hana á tökustað og hagaði sér undarlega. Síðan hafi hún fundið hugrekkið til að spyrja hvað væri eiginlega að. 

„Það versta við það er að ég hugsaði með mér „plís ekki nefna einhverja stelpu“ og svo byrjaði hann að tala um einhverja stelpu,“ sagði Kendrick. Hún segist hafa kennt sér sjálfri um allt sem var að í sambandinu og hugsað fyrst með sér að það væri henni að kenna að þau hefðu hætt saman. Síðan hafi þau farið í sambandsráðgjöf sem hjálpaði þeim lítið sem pari, en Kendrick segist þó hafa lært mikið á því. 

„Á endanum hjálpaði þetta allt saman mér til framtíðar litið. En í fyrstu hugsaði ég bara með mér að ég þyrfti að læra að hætta að vera klikkuð og hætta að finna fyrir tilfinningum mínum,“ sagði Kendrick. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert