Gerði grín að barnafjölda Murphys

Tracy Morgan og Eddie Murphy.
Tracy Morgan og Eddie Murphy. AFP/Frederic J. Brown

Grínistinn Tracy Morgan sló á létta strengi á Golden Globe-verðlaunahátíðinni á þriðjudagskvöld þegar hann veitti leikaranum Eddie Murphy Cecil B. DeMille-verðlaunin. Sagði Morgan hann vera slappan í því að „kippa honum út“ en Murphy er tíu barna faðir. 

Grínaðist Morgan líka með að Murphy og kærasta hans Page Butcher væru að reyna að slá met tónlistarmannsins Bobs Marleys sem átti 11 börn. 

„Þú þarft bara að horfa á Paige til að gera hana ólétta,“ sagði Morgan. 

Murphy á tíu börn með fimm konum. Elst eru Eric og Bria sem eru 33 ára, Christian er 32 ára, Myles er 30, Shayne er 28 ára, Zola 23 ára, Bella 20 ára, Angel 15 ára, Izzy er 6 ára og Max 4 ára. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert