Amma forsetadóttur kallaði hana feita

Jenna Bush Hager ásamt fjölskyldu sinni.
Jenna Bush Hager ásamt fjölskyldu sinni. Skjáskot/Instagram

Jenna Bush Hager segir að amma sín, Barbara Bush, hafi oft sett út á líkama hennar þegar hún var táningur. Jenna Bush Hager er dóttir George W. Bush fyrrum forseta Bandaríkjanna.

Í þættinum Today with Hoda and Jenna ræðir Bush Hager um líkamsvirðingu. Hún rifjar upp hvernig amma sín hafi stundum sett út á líkama hennar.

„Ég man meira að segja hvernig bíkiníið var á litinn; gult. Ég lá við hlið systur minnar í sólbaði. Ég dáði ömmu mína en hún hafði samt svolítið beittan persónuleika. Hún sagði við mig: Oh, Jenna. Lítur svolítið feit út í dag.“

„Ég man bara að mig langaði að fara í felur,“ segir Bush Hager.

„Móðir ömmu hafði alltaf sagt að systir ömmu, Martha, væri sú sæta. „Martha er sú sæta en þú ert sú fyndna og klára. Martha er þetta og þú ert hitt.“ Síðar meir sagði hún við mig: „Manstu þegar ég sagði þessa hluti við þig. Ég var í raun að tala við sjálfa mig.“

Ummæli ömmunar höfðu þó töluverð áhrif á Bush Hager. 

„Ég fór ekki aftur í bíkiní í mörg ár eftir þetta.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert