Tekur heilsuna í gegn á meðgöngunni

Rumer Willis.
Rumer Willis. mbl.is/Cover Media

Rumer Willis á von á sínu fyrsta barni von bráðar. Hún segir meðgönguna hafa opnað augu hennar fyrir mikilvægi góðrar heilsu. Nú horfir hún lífið öðrum augum og er mun meðvitaðri um allt það sem hún lætur ofan í sig.

„Um leið og ég komst að því að ég væri ólétt þá fór ég strax að huga að því sem ég lét ofan í mig og á. Þetta átti við um allan mat, krem, olíur, drykki og vítamín. Ég vildi sem mest náttúrulegt með sem fæst innihaldsefni.

Ég rannsakaði allt og prófaði nokkur vítamín fyrir óléttar konur. Mér varð flökurt af sumum þeirra og sum höfðu ekki það sem ég var að leita að (vantaði t.d. choline).“ 

Rumer Willis er elsta barn Demi Moore og Bruce Willis. Þau eru sögð í skýjunum með fyrsta barnabarnið. 

Rumer Willis og Demi Moore á tískusýningu Tom Ford.
Rumer Willis og Demi Moore á tískusýningu Tom Ford. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert